0
Karfan þín er tóm
Close
Leit
Síun

VELA Tango 700E Active rafknúinn

Vörunúmer: VERM71011M
– –

Alhliða vinnustóll með rafknúinni hæðarstillingu

Hæðarstilling er rafknúin og því hentar stóllinn vel fyrir einstaklinga með skert jafnvægi og þau sem eiga erftitt með að standa á fætur.

Active sætiseiningin gefur þægindi og léttan stuðning við setstöðu.
Stóllinn er fáanlegur í 4 stærðum: small, medium, large og x-large. Stærðin segir til um breidd og dýpt/hæð á baki og setu, sjá pöntunareyðublað.

Hægt er að velja um 11 mismunandi sethæðir. Mikilvægt er að taka tillit til hæðar og leggjalengdar notandans þegar sethæð er valin.

Möguleiki er að halla baki aftur um 22° og fram um 4°.
Setu er hægt að halla fram um 10° og aftur um 15°.

Hæðar- og dýptarstillanlegir armar.

Bremsustöng sem bremsar afturhjólin eykur öryggi og notkunar möguleika stólsins. Hægt að velja um staðsetningu bremsu, hægra eða vinstra megin.

Upplyftanlegur fóthringur fylgir með stólnum.

Gott úrval aukahluta fáanlegt s.s upplyftanlegur fótpallur, hliðarstuðningar, belti ofl.

Litir á áklæði: svartur, rauður og blár.

Hámarksþyngd notanda: 160 kg

Senda til
*
*
Sendingarmáti
Nafn
Áætlaður sendingarkostnaður
Verð
Engir sendingarmöguleikar